Námsmarkmið
Velkomin í Námsþátt 4: Viðhald þéttbýlisgarðs
Í fyrri námsþáttum hefur þú lært um uppsetningu og ávinning af garðyrkju í þéttbýli, jákvæð áhrif sem hún hefur á þig, á samfélagið þitt og einnig á loftslagið. Þú hefur verið skapandi í að hugsa um draumagarðinn þinn og þú hefur skilgreint hvað þú þarft að gera til að koma honum upp. Þú hefur kannað og ákveðið staðsetningu, hvers konar jarðveg er til staðar og hversu mikla sól garðurinn fær o.s.frv.
Í þessum námsþætti munum við kynna fyrir þér meginreglur og grunnatriði til að viðhalda garðinum þínum. Námsþátturinn mun leggja áherslu á:
- Undirbúningur jarðvegs, mismunandi leiðir til að gróðursetja og grunnatriði ræktunarskipta,
- Viðhald eins og vökvun, frjóvgun, takast á við illgresi og meindýr, hvernig á að ígræða plöntur og búa til moltu,
- Uppskera: varðveita ávexti og grænmeti og þurrka blóm og safna fræjum.