Námsmarkmið
Velkomin í Námsþátt 3: Stofnun og uppbygging þéttbýlisgarðs!
Í fyrri námsþáttum hefur þú lært um kosti þéttbýlisgarðyrkju og þau jákvæð áhrif sem hún hefur á þig, á samfélagið þitt og einnig á loftslagið. Þú hefur verið skapandi í að hugsa um draumagarðinn þinn. Í þessum námsþætti munum við skoða hvaða þarf að gera og hvað það er sem þarf til að setja upp þéttbýlisgarð – vonandi getum við komist nálægt því sem þú skilgreindir sem draumagarðinn þinn. Auðvitað þurfum við að huga að því hvar garðurinn þinn er staðsettur, hvers konar jarðveg er í garðinum, hversu mikla sól garðurinn fær, hversu stór hann er, hvaða garð þú vilt búa til … . Í þessum námsþætti munum við kynna fyrir þér meginreglur og grunnatriði við að setja upp þéttbýlisgarð. Námsþátturinn leggur áherslu á:
- Atriði sem þarf að huga að þegar þú byrjar að setja upp garðinn þinn – Skref í skipulagningu
- Hvernig garður hentar þeirri staðsetningu og þeim aðstæðum sem eru til staðar (hvað varðar jarðveg, sólarljós, stærð lands o.s.frv.)
- Verkfæri og innviði sem þú þarft til að setja upp garðinn þinn